Þetta er rant sem skiptir kannski engu máli, en jæja, ég læt vaða.
Í gærkvöldi var ég að scrolla eitthvað á RÚV og rakst á þessa frétt. Í sjálfu sér mjög ómerkileg frétt þannig séð "Landsvirkjunarhúsið fær nýtt hlutverk". Ég klikkaði á fréttina og las að Landsbyggð ehf. hafi keypt húsið og rýmið þarna. Landsbyggð ehf hefur sterka tengingu við stórútgerðina og sjávarútveginn í gegnum eigendur sína. Félagið er í helmingseigu tveggja einstaklinga,
-Kristjáns Vilhelmssonar, sem er framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, stofnandi og einn af stærstu eigendum Samherja.
-Lóðabraskarinn og fasteignabraskarinn Leós Árnasonar, "athafnamanns" sem hefur leitt ýmis þróunarverkefni á Suðurlandi og víðar s.s. Sigtún þróunarfélag. Bein tengdur við Sjallana á Selfossi sem eru í meirihluta þar
Í gegnum eignarhald Kristjáns eru því mjög skýr og bein tengsl við stórútgerðina.
Af hverju finnst mér þetta rautt flagg og umhugsunarefni?
Í fyrsta lagi þá er þetta klárlega partur af samþjöppun auðs og áhrifa í samfélaginu. Þegar hagnaður úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, kvótanum okkar, er notaður til að kaupa upp lykilfasteignir, innviði, fjölmiðla eða önnur fyrirtæki á landinu, þá upplifði ég að lítið net fjárfesta sé að eignast allt of stóran hlut í íslensku samfélagi. Ég set líka stórt spurningamerki við það þegar stórútgerðin notar peningana úr sameiginlegu auðlindinni okkar í að fjárfesta í óskyldum rekstri eins og að kaupa upp myglaðar opinberar byggingar, dæla í þær milljörðum úr sjávarútveginum til að gera þær upp og leigja þær svo undir einkarekna heilbrigðisþjónustu? Það á einfaldlega að hækka veiðigjöldin miklu, miklu meira (ef ekki hreinlega að þjóðnýta auðlindina öllu saman) svo við getum notað arðinn úr auðlindinni í að fjárfesta í samfélaginu sjálfu: innviðum, skólum, velferðakerfinu, heilbrigðiskerfinu, vegakerfinu, almenningssamgöngum og húsnæðismálum. Fokk that að stórútgerðarmafían fái að halda þessu öllu, leika sér með okkar peninga, kaupa upp samfélagið og stunda hér nútíma ólígarkisma. Og já, við þurfum nýju stjórnarskrána sem var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012!
Háaleitisbraut 68 og líklega allur Háaleitisreiturinn er eitt stærsta og mikilvægasta þróunarsvæðið í höfuðborginni. Mér finnst að þegar aðilar með gríðarlegt fjármagn úr sjávarútvegi eignast slík svæði geti þeir haft úrslitaáhrif á hvernig borgin þróast, hverjir fá að leigja og hvaða starfsemi þrífst þar. Tengslin við stjórnmál og hið opinbera eru svosem alveg skýr þar sem það er bein lína á milli Sjálfstæðisflokksins og stórútgerðarinnar. Kaup á eignum sem áður hýstu opinberar stofnanir eins og Landsvirkjun vekja hjá mér spurningar um tengsl stóreignafólks, opinberra aðila og pólitíkur og ég held þetta sé orðið miklu miklu meira en kom fram í skýrslu Hagfræðistofnun HÍ í vor.
Jújú, vissulega munu þau segja að þetta sé áhættudreifing að í stað þess að setja alla sína peninga í eina körfu (fiskveiðar og vinnslu) reyni þau að dreifa áhættunni með því að fjárfesta í stöðugri atvinnugrein, og allskyns gaslysingar. En mér er alveg sama, þetta er samþjöppun. Og ég hef áhyggjur af því að nú reyni þau að sölsa undir sig eignir og miðbæi smátt og smátt, ekki bara á landsbyggðinni heldur líka á höfuðborgarsvæðinu. Við munum enda með mjúkt vald þeirra alls staðar á Íslandi ekki bara á Akureyri, Dalvík, Selfossi og smærri bæjarfélögum þar stórútgerðin beytir sínu mjúka valdi, heldur bara alls staðar.
Aftur vil ég vitna í þráð sem ég birti fyrir stuttu: 19 heimildarmenn stíga fram: Atvinnugrein hefur um árabíl rekið „nútíma ólígarkí“ á Íslandi.
Stundum langar mig að skrifa um þetta opinberlega í fjölmiðlum, en við vitum öll hvernig farið er með þá sem uppljóstra spillingu stórútgerðinnar í þessu samfélagi, sendiboðinn er alltaf skotinn. Við sáum bara örlög blaðamannanna í Namíbíumálinu þar sem reynt var að rústa mannorði þeirra, og þeir eltir af einkaspæjurum og spiltum löggum.
Við sjáum þetta líka svo skýrt í öðrum dæmum. Daði Már þurfti til dæmis að bakka með orð sín sem hann sagði í viðtali við danska miðilinn í vor, þar sem hann bókstaflega viðurkenndi að stórútgerðin stundaði nútíma ólígarkisma og að það væri bein lína á milli Sjálfstæðisflokksins og stórútgerðarinnar. Örfáum dögum síðar bakkar hann með þetta allt og segir allt í einu að "það sé ekki spilling á Íslandi heldur í Namíbíu"
Þetta er rannsóknarefni sem ég vona að framtíðarblaðamenn eigi eftir að kafa betur í. Hvað gerðist eiginlega bak við tjöldin? Af hverju bakkaði hann? Fékk hann tiltal eða símtal frá stórútgerðarmafíunni? Það eru svo mörgum spurningum ósvarð um þesa blessuðu stórúgerðarmafiu.